Garðatorg eignamiðlun ehf. : Björt og snyrtileg 91,7 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. Komið er inní flísalagt anddyri, við hlið er þvottahús og geymsla. Tvær bjartar stofur, ágætt útsýni. Ágætt eldhús með ljósri innréttingu, gott búr er innaf eldhúsi. Eldhúskrókur þar sem útgengt er út á mjög góðar yfirbyggðar svalir (suður og vestur). Baðherbergi með sturtu. Hjónaherbergi er rúmgott, fataskápar, útgengt á stórar svalir. Annað rúmgott herbergi. Góð sameign, hjóla og vagnageymsla. Góð geymsla. Húsvörður er í húsinu. Sölumaður : Sigurður sími 898-3708.



