Garðatorg eignamiðlun sími 545-0800. Einstaklega fallegt og talsvert endurnýjað lítið raðhús ( allt nánast eins og nýtt ) ! Húsið er mjög vel við haldið á einni hæð með sér inngang, ásamt bílskúr, á frábærum stað í Garðabæ. Garðurinn er fallegur og opin svæði eru í kringum húsið, stór timburverönd með skjólveggjum. Íbúðin er 75,8 m². og bílskúr er 19,3 m². Eignin skiptist í : forstofu, hol, hjónaherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, herbergi (þvottahús) og geymslu. Nánari lýsing eignar. Forstofa er með góðum fataskáp og við hlið er lítið herbergi með glugga sem var hannað sem þvottahús, er svefnherbergi í dag. Eldhúsið fallegt nýtt rúmgott með góðum borðkrók með glugga. Stofan er rúmgóð og björt, útgengt í garðinn sem er með góðri verönd. Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum. Baðherbergið er glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf og með innréttingu og sturtuklefa, tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Ágæt geymsla er í sameiginlegu rými annarra íbúða ásamt hjólageymslu. Falleg nýleg gólfefni, fataskápur og innihurðar. Bílskúrinn er sérstæður rétt við húsið.Mjög falleg íbúð og hús á einni hæð í mjög góðu ástandi með sér fallegum garði! Sölumaður Sigurður síma 898-3708.