Opið hús: 12. október 2024 kl. 13:00 til 13:30.
**Aðeins 3 íbúðir eftir**
GARÐATORG EIGNAMIÐLUN KYNNIR TIL SÖLU NÝJAR, BJARTAR OG FALLEGAR ÍBÚÐIR Í TVEGGJA HÆÐA HÚSI VIÐ HRAFNABORG 3 Í VOGUNUM. ÍBÚÐIRNAR ERU RÚMGÓÐAR OG VANDAÐAR 4 HERBERGJA ÍBÚÐIR MEÐ SÉRINNGANGI, GÓÐRI LOFTHÆÐ, SÉR ÞVOTTAHÚSI OG GEYMSLU INNAN ÍBÚÐAR. Í STÆRRI ÍBÚÐUNUM ERU 2 BAÐHERBERGI.
ÍBÚÐ 204 er á efri hæð, alls 111,7 FM að stærð, með
3 svefnherbergjum og
1 baðherbergi. Stofa, borðstofa og eldhús eru í sama rými. Falleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gengið er út á stórar svalir úr stofu. Rúmgott þvottahús með innréttingu og geymsla innan íbúðar.
* Allar innréttingar eru frá VOKE III.
* Raftæki eru frá ELECTROLUX og AEG.
* Á gólfum er harðparket frá AGLI ÁRNASYNI.
* Gólf á baðherbergjum og þvottahúsi eru flísalögð.
* Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.Húsið er steinsteypt og klætt að utan með álbáru og timbri, lóð þökulögð og bílastæði malbikuð. Lokafrágangur utanhúss er áætlaður í september/október 2024. Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótarmati.
Nánari upplýsingar veita:Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s:
866-0507 eða
[email protected]Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali, s:
898-3708 eða
[email protected]GARÐATORG EIGNAMIÐLUN ER STAÐSETT Á LYNGÁSI 11 Í GARÐABÆ. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900kr.- sem greiðist við undirritun kaupsamnings.
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.