Garðatorg eignamiðlun kynnir í einkasölu atvinnuhúsnæði, með fullbúinni 2ja herb. íbúð, við Austurmörk 5 í Hveragerði, fnr. 220-9820.
Vel skipulagt 191,3m2 atvinnuhúsnæði með þremur stórum innkeyrsluhurðum. Búið er að skipta eigninni niður í þrjú bil og á hverju bili eru stórar innskeyrsluhurðar. Búið er að gera tveggja herbergja íbúð í einu bili hússins með sérinngangi á hlið hússins. Endabilið er með millilofti yfir helming rýmisins. Að sögn seljenda er möguleiki á stækkun þar sem byggingaréttur er á lóðinni. Lóðin er 903.7m2 og er því gott útisvæði sem fylgir húsinu.
Eignin er á góðum stað, miðsvæðis í Hveragerði. sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar G Þórðarson
[email protected] eða í síma 899 5901.